Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Eyktar ehf.

28.11.2011

Eykt 25 ára

frétt 69Þann 17. nóvember sl. fagnaði Eykt 25 ára afmæli sínu en fyrirtækið var stofnað 17. nóvember 1986. í tilefni dagsins var öllum starfsmönnum fyrirtækisins sem þess áttu kost boðið í morgunkaffi á veitingastaðnum Hamborgarafabrikkuninni, sem er til húsa í turninum á Höfðatorgi. Þar átti starfsfólkið góða stund saman. þess skal getið að sumir starfsmenn Eyktar eru nú við störf í Stavanger í Noregi og á Höfn í Hornafirði.

4.10.2011

Vindakór 2-8 Kópavogur

Vindakór 150Frá undirritun verksamnings við Íbúðalánasjóð  (Íls) vegna Vindakór 2-8  Frágang utanhúss.

Vindakór 2-8 samanstendur af tveimur íbúðablokkum með sameiginlegum bíla-og geymslukjallara. Íbúðalánasjóður er núverandi eigandi og ákvað að ljúka við utanhússfrágang og lagfæra það sem aflaga hefur farið. Verkið var boðið út í lokuðu útboði að loknu forvali. Eykt átti lægsta tilboðið í verkið og samþykkti stjórn Íls að ganga til samninga við Eykt

14.9.2011

Norðurbakki 15-21

NB- Stofa 3 150Eykt hefur tekið að sér framkvæmdir á Norðurbakka 15-21 í Hafnarfirði í samvinnu við Varmárbyggð ehf. Á lóðinni eru þrjár íbúðablokkir með 49 ófrágengnum íbúðum en fjórða húsið á lóðinni er óuppsteypt. Byggingarnar eru með sameiginlegum bílakjallara sem er frágenginn.

Sala íbúða gengur vel og stefnt er að því að ljúka frágangi íbúða fyrir áramót. Nánari upplýsingar eru að finna á tengli hér til hægri, áhugasamir geta haft samband við fasteignasölurnar, Ás, Stakfell, Hraunhamar eða Stóreign.  Sjá myndir

 


Byggðaþróun

Blikastaðir, Mosfellsbæ

  ____________________________

Útboðsgögn - ____________________________


Höfðatorg - miðborgin stækkar

 Fasteignir til sölu

Fasteignir til leigu 

HöfðatorgAnnað atvinnuhúsnæði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English

Mynd