Fréttir
24.8.2010
Framkvæmdir á horni Lækjargötu og Austurstrætis ganga vel
Unnið er við uppsteypu fyrir Reykjavíkurborg á byggingum við Austurstræti 22, Lækjargötu 2 og Lækjargötu 2b. Verkefnið felur í sér uppsteypu 830m2 sameiginlegs kjallara undir allri lóðinni ásamt uppsteypu1. hæðar Lækjargötu 2 og uppsteypu þriggja hæða húss við Lækjargötu 2b.
Samhliða samningi um uppsteypu hefur Eykt jafnframt tekið að sér stýriverktöku við alla verkþætti sem tengjast frágangi bygginganna.
Verkið er langt komið og áætlað er að uppsteypu ljúki um miðjan september.








