Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Eyktar ehf.

Verkefnin

Fyrsta stóra verk Eyktar var bygging Stuðlaháls 2, sem hýsir vínbúðina Heiðrúnu. Fyrirtækið byggði síðan á árunum 1990-2000 m.a. hús Ferðafélags Íslands við Mörkina 2, Grjótháls 5 sem hýsir starfsemi stoðtækjafyrirtækisins Össurar og Grafarvogskirkju.

Starfsemi fyrirtækisins jókst til muna eftir að eignir Vöruflutningamiðstöðvarinnar við Borgartún voru keyptar árið 1999 og uppbygging hófust þar. Í kjölfarið var Höfðaborgin Borgartúni 21 byggð ásamt Hagstofuhúsinu Borgartúni 21A og höfuðstöðvum Kaupþings banka við Borgartún 19. Á sama tíma var Eflingarhúsið við Sætún 1 byggt.

Hús Íslenskrar erfðagreiningar hf. var síðan byggt árið 2001. Framkvæmdir hófust í febrúar 2001 og húsið var fullgert í desember sama ár, alls um 16.000 m2 að flatarmáli.

Verk sem Eykt hefur lokið við síðan þá eru m.a.

  • Allar vegbrýr við tvöföldun Reykjanesbrautar 2004 og 2007,
  • 230 m löng brú yfir Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi 2005,
  • Göngubrýr yfir Hringbraut og Njarðargötu ásamt undirgöngum og stoðveggjum, allt hluti af verkinu Færsla Hringbrautar 2005,
  • Vegbrýr og göngubrýr yfir Úlfarsá 2005,
  • Stækkun Laugardalshallarinnar 2005,
  • Akstursbrú á mótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar 2006,
  • Bygging verslunarhúss fyrir MEST 2006 og stækkun steypustöðvar MEST 2007,
  • Stækkun Menntaskólans í Hamrahlíð 2006,
  • Stækkun Cabin-hótels 2007,
  • Bygging 100 MW gufuaflsvirkjunar á Reykjanesi 2004-2006,
  • Bygging 30 MW gufuaflsvirkjunar í Svartsengi 2007,
  • Stækkun höfuðstöðva Kaupþings banka við Borgartún 2007,
  • Íbúðarhús við Erluás, Skógarsel og Helluvað 2003-2007.
  • Helluvað 7 - 21

 


Byggðaþróun

Blikastaðir, Mosfellsbæ

  ____________________________

Útboðsgögn - ____________________________


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English

Mynd