Eykt hvetur allt sitt fólk til að viðhalda og bæta við þekkingu sína með fjölbreyttum námskeiðum innan húss og utan. Á árinu 2025 voru vel yfir þúsund vinnustundir nýttar í endurmenntun og viðbótarmenntun af margvíslegu tagi – nám í verkefnastjórnun við HR, fjölbreytt námskeið hjá Iðunni, vinnuvélaréttindi, öryggisnámskeið, umhverfisstjórnun og ótalmargt fleira.
Umhverfi okkar er í stöðugri þróun, ekki einungis með nýjum aðferðum, efnum og áherslum, heldur einnig innan fyrirtækisins. Við viljum vaxa sem heild með umhverfinu en við viljum ekki síður að starfsfólkið okkar vaxi með okkur, taki framförum og bæti við sig kunnáttu og reynslu.
Með stöðugri þjálfun og þekkingaröflun nýtum við tímann betur, gerum færri mistök og skilum vandaðra og verðmætara verki.
Í síðustu viku fór fram árleg úttekt á stjórnkerfi Eyktar. Úttektina framkvæmdi alþjóðlega vottunarstofnunin BSI (British Standards Institution) og gekk hún mjög vel. Úttektarmenn fóru víða um starfsemina og skoðuðu...
Eykt leggur mikla áherslu á endurmenntun til að auka þekkingu og færni starfsfólks, fylgja þróun og þörfum byggingarmarkaðarins og efla þjónustu fyrirtækisins. Umfjallanir um raka og myglu í byggingum hafa...
Steypuvinnu við meðferðarkjarna nýja Landspítalans lauk í gær þegar síðustu átta rúmmetrarnir runnu ljúflega á sinn stað. Þeir lögðust við þá 56.920 rúmmetra af steinsteypu sem farið hafa í meðferðarkjarnann...