Verið er að ljúka við að byggja nýja stálbitabrú fyrir Landsvirkjun við frárennslisskurð í Sultartangavirkjun ofan við Búrfellsstöð í Skeiða og gnúpverjahrepp, staðsett um 100 metrum ofar en gamla brúin og mun hún koma í stað gömlu brúarinnar. Nýja brúin er 33 metrar á lengd og 8 metrar á breidd. Áætlað er að smíði brúarinnar ljúki í nóvember 2019.