





Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
Nýi framhaldsskólinn í Mosfellsbæ rúmar 500 nemendur í tveimur byggingum sem tengjast í björtu miðrými þar sem nemendur mæta, hittast og spjalla, en rýmið nýtist einnig sem samkomusalur og rými fyrir sýningar og viðburði. Nær öll kennslurými eru á efri hæðum og byggja á opnum svæðum sem má hólfa með fjölbreyttum hætti eftir því sem hentar hverju sinni.
Við hönnun skólans var beitt BIM aðferðafræði og byggingin er sjálfbær samkvæmt BREEAM, umhverfismati fyrir byggingar, með einkunnina „mjög gott“.
Fyrir |
Mosfellsbæ og menntamálaráðuneytið |
Hönnun |
A2F Studio |
Stærð |
4.100m² |
Afhent |
2014 |